Vel heppnuð hátíð

Vetrarhátíðinni Éljagangur lauk í gær en hátíðin hófst sl. fimmtudag.  Hátíðin heppnaðist í alla staði vel þrátt fyrir að veðrið hafi gert skipulaginu erfitt fyrir á stundum með hitatölum og þó nokkru hvassviðri á köflum.   Mikil stemning skapaðist á Ráðhústorgi alla helgina þar sem snjóbrettakappar léku list sínar við hlið Frosta snjókalls.  Mikil aðsókn var á skíðagöngunámskeiðið, sleðaspyrnuna, ískrossið og á Vetrarsportsýninguna í Boganum og margir tóku þátt í fjölmörgum ferðum sem í boði voru á meðan hátíðinni stóð.
Undirbúningshópur Éljagangs vill þakka öllum sem að hátíðinni komu fyrir mikið og gott starf.  Sjáumst hress á Éljagangi 2013.

 

Posted in Uncategorized | Comments Off

Athugið! Breyting á dagskrá í kvöld – föstudag!

Vegna hvassviðris í Hlíðarfjalli hefur verið ákveðið að færa
Camp Lobster snjóbrettakeppnina og -sýninguna sem vera átti í Hlíðarfjalli í kvöld niður á Ráðhústorg. Útbúin verður flott aðstaða á torginu við hlið Frosta snjókarls. Viðburðurinn hefst kl. 18.00 og stendur til rúmlega 20.00. Verðlaunaafhending fer fram á sama stað að lokinni keppni.

Bæjarbúar og gestir eru hvattir til að mæta og horfa á flotta sýningu!

Athugið að snjósleðaspyrnan verður haldin í Hlíðarfjalli kl. 20.00 í kvöld skv. dagskrá og það sama á við um flugeldasýninguna.

Posted in Uncategorized | Comments Off

Camp Lobster snjóbrettakeppni og sýning

Snjóbrettakeppni og sýning á vegum Camp Lobster og Brettadeildar Skíðafélags Akureyrar (SKA) Í Hlíðarfjalli

Föstudaginn 10. febrúar fer fram glæsileg  snjóbrettakeppni og -sýning á Toyotatúninu í Hlíðarfjalli á vegum Camp Lobster og SKA. Keppt verður á boxum og rörum (rails) í tveimur aldursflokkum, 14 ára og yngri og 15 ára og eldri.

Búast má við fjörugri keppni í flóðlýsingu og dynjandi tónlist. Skráning fer fram á staðnum, hálftíma fyrir keppni. Keppendur verða að vera með hjálma. Reiknað er með 20 til 30 keppendum af öllu landinu og verða vegleg verðlaun í boði. Aðal vinningur fyrir 14 ára og yngri verður pláss í sumarbúðir Camp Lobster að verðmæti 75.000 kr. En Camp Lobster eru sumarbúðir Lobster fyrirtækisins sem er í eigu Helgasons bræðranna og Nike.  Þessar sumarbúðir voru haldnar í Hlíðarfjalli í fyrsta skipti í fyrra og vöktu verðskuldaða athygli. Nánari upplýsingar um Camp Lobster má finna á facebook síðu þeirra.

Um viðburðinn

Posted in Uncategorized | Comments Off

Fyrirlestrar

Á Vetrarsportsýningu Ey-LÍV í Boganum verða fluttir tvennir fyrirlestrar.

Laugardagur 11. febrúar kl 14:00
„Snjóflóðaöryggisbúnaður og lífslíkur í snjóflóðum“

Kynning á hönnunarforsendum og virkni mismunandi „snjóflóðaöryggisbúnaðar“ og hvernig sá búnaður miðar að því að auka lífslíkur þess sem grefst í snjóflóði. Lífslíkur grafins einstaklings í snjóflóðum útskýrðar.
Kynning á framboði helsta snjóflóðöryggisbúnaðs sem er notaður í dag.

Fyrirlesari: Anton Berg yfirleiðbeinandi í snjóflóðum hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg

- – - – - – - – - – - -

Sunnudagur 12. febrúar kl 14:00
Örugg ferðamennska á vélsleðum 

Farið í ýmsa þætti sem skipta máli  þegar ferðast er á vélsleðum um fjallendi þám horft á snjóflóðahættu og hegðun á snjóflóðahættusvæðum út frá sjónarhóli vélsleðamannsins.

Fyrirlesari: Gísli Páll yfirleiðbeinandi í vélsleðum hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg

Frítt inn bæði á sýninguna og fyrirlestrana.

Posted in Uncategorized | Comments Off

Tilboð á flugi

Okkur var að berast orðsending frá Flugfélagi Íslands, en þau verða með flott Éljagangstilboð á flugi milli Akureyri og Reykjavíkur.

Fljúgðu fyrir aðeins kr. 6.750 aðra leið.

Þetta einstaka tilboðsfargjald
- er bókanlegt 30. – 31. janúar

- ferðatímabil 9. – 12. febrúar

- býðst eingöngu þegar bókað er á netinu, www.flugfelag.is

- ekki endurgreitt nema veður hamli flugi

- takmarkað sætaframboð

Bókaðu á www.flugfelag.is

Posted in Uncategorized | Comments Off

Dulúð Norðurljósanna

Norðurljósin

Að halda út í hina norðlensku vetrarnótt og upplifa magnað sjónarspil ljósa, lita og lögunar er rétt eins og vakna upp í ævintýri, fullu af töfrum og dulúð.

Ferðaskrifstofan Saga Travel hafa selt Norðurljósin um árabil, þ.e. þeir þekkja vel til þeirra aðstæðna sem þurfa að vera til staðar til að hægt sé að njóta Norðurljósanna sem best. Haldið verður til fjalla eða dala sem fjarri eru ljóma rafmagnsljósa Akureyrar.

Þeir gefa einnig góðan tíma til að leiðbeina fólki í hvernig sé best að ná ljósmyndum af Norðurljósum ásamt því að velja staði sem henta til myndatöku.

Norðurljósaferðirnar á Éljagangi verða 10. 11. og 12. febrúar kl 22:00. Þetta er þriggja tíma ferð, sem bóka þarf fyrirfram hjá Saga Travel.

Posted in Uncategorized | Comments Off

Upp á Kaldbak!

Það gefst frábært tækifæri til að fara upp á Kaldbak um Éljagangshelgina. Í góðu veðri er frábært útsýni inn allan fjörðinn, yfir Hrísey og inn í Ólafsfjörð og Siglufjörð og jafnvel til Grímseyjar.

Kaldbaksferðir eiga tvo snjótroðara sem eru útbúnir með opnu farþegarými. Annar bíllinn tekur 20 farþega og hinn 32

Þegar búið er að njóta útsýnisins tekur við lengsta skíða / bretta / þoturassa / sleðabrekka á landinu.. um 1173m. Ef þú vilt eingöngu njóta útsýnisins og ferska loftsins geturðu farið aftur niður með troðaranum.

Kaldbakur gæti því bókstaflega orðið hápunktur vetrarins!

Nánari upplýsingar hérna.

Posted in Uncategorized | Comments Off

Vantar þig gistingu?

Viltu eiga frábæra skíðahelgi á Akureyri en vantar þig gistingu?

Skjaldarvík gistiheimili býður vinalegt vetrartilboð á Éljagangi, 4500 kr nóttin á mann í tveggja manna herbergi í tvær nætur og frítt fyrir börn yngri en 6 ára.

 

Kíkið á það hérna

Posted in Uncategorized | Comments Off

Fjallaskíði

Hefurðu prófað fjallaskíði? Ef ekki þá er komið að því núna!

Um er að ræða tvö dagslöng námskeið þar sem þátttakendum gefst kostur á að prófa þetta stór skemmtilega sport undir handleiðslu fagmanna. Námskeiðin eru að öllu leiti verkleg, þar sem farið er yfir alla grunn þætti fjallaskíðamennsku svo sem útbúnað, leiðarval, mat á snjóflóðahættu, snjóflóðaleit og skíðatækni ásamt því sem að skíðaðar verða stórskemmtilegar brekkur.

Nánari upplýsingar

Posted in Uncategorized | Comments Off

Vefmyndavél frá Akureyri

Fyrir nokkrum vikum setti Míla upp vefmyndavél í hlíðinni gegnt Akureyri og þar hafa áhorfendur frábært útsýni yfir bæjarstæðið og upp í Hlíðarfjall. Frábært framtak!

Kíktu á: http://live.mila.is/akureyri/

Posted in Uncategorized | Comments Off